Elliði Vignisson var í dag endurráðinn bæjarstjóri í Ölfusi. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook síðu sinni.Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins fór fram í dag og var Elliði endurkjörinn bæjarstjóri án allra mótatkvæða. Hann segist fullur eftirvæntingar fyrir komandi kjörtímabili.Elliði leiðir Sjálfstæðisflokkinn í sveitarfélaginu en Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta í sveitarstjórn. Elliði hefur verið bæjarstjóri í Ölfusi frá árinu 2018, áður gegndi hann embætti bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar.RÚV