Kvika banki mun greiða út sérstaka arðgreiðslu til hluthafa að fjárhæð 2,35 krónum á hlut sem nemur rúmum tíu milljörðum króna. Tillaga þess efnis var samþykkt á hluthafafundi Kviku í dag en í hádeginu var tilkynnt að ellefu starfsmönnum hafi verið sagt upp í hagræðingaraðgerðum. Alls hefur stöðugildum fækkað um átján það sem af er ári.