„Það er eiginlega allt gott við hana, alveg draumameri“

Hryssan Hugsýn frá Ketilsstöðum er nú hæst dæmda hryssa landsins frá upphafi kynbótadóma en hún fékk meðal annars einkunnina tíu fyrir samstarfsvilja og níu komma fimm fyrir tölt og fegurð í reið í kynbótadómi í gær.Hugsýn er sex vetra og ræktuð af þeim Bergi Jónssyni og Olil Amble, sem búa á Syðri-Gegnishólum í Flóahreppi með sín hross. Þar er Elín Holst, knapi og við tamningar líka en hún sýndi Hugsýni í kynbótadómi í Hafnarfirði og fékk ótrúlega háar einkunnir, til dæmis 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið, 8,63 fyrir sköpulag, 9,18 fyrir hæfileika og 10 fyrir samstarfsvilja og endaði með aðaleinkunnina 8,99. Hugsýn er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Hugrökk frá Ketilsstöðum.„Ég er mjög stoltur af henni, þetta er virkilega flott. 9,5 fyrir tölt og 9 fyrir skeið er bara frábært að
„Það er eiginlega allt gott við hana, alveg draumameri“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd