„Mér finnst þetta algjörlega ferlegt og óboðleg vinnubrögð,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, um að taka eigi Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar frá og með mánudeginum. GAGNRÝNIR SAMRÁÐSLEYSI Í fyrradag var tilkynnt að Baldur sigli milli lands og Vestmannaeyja ásamt Herjólfi frá og með næsta mánudegi vegna mikilla anna í flutningum. Þetta varir á meðan gert er við eina vél Herjólfs en talið er að því ljúki upp úr miðjum júní. Á meðan verða engar siglingar að Brjánslæk en önnur ferja siglir frá Stykkishólmi í Flatey.Gerður Björk gagnrýnir skort á samráði þegar ákvörðunin var tekin. „Við fengum tölvupóst sama dag og þetta var tilkynnt í Vestmannaeyjum. Mér finnst þessi ákvörðun bera vott um mikla vanvirðingu fyrir Vestfirð