Frá og með 1. september má fólk sem hefur selt fasteignafélaginu Þórkötlu húsnæði sitt í Grindavík aðeins gista þar tiltekinn fjölda nótta í mánuði. Gerð verður krafa um að fólk skrái inn þær nætur sem gist er til að „efla öryggi og yfirsýn yfir rýmingu eignanna“, að því er segir í tilkynningu á vef Þórkötlu.Grindvíkingar sem hafa selt Þórkötlu fasteignir sínar hafa getað gert svokallaða hollvinasamninga um afnot af þeim. Föst búseta í þeim er óheimil en fólk hefur getað gert sérstakan viðauka við samninginn frá því í fyrra sem heimilar því að gista.Á fundi Járngerðar, hagsmunasamtaka Grindvíkinga, fyrr í vikunni kom fram að Þórkatla stefndi að því að takmarka gistingu við 12 nætur á mánuði í hverri eign. „MARGIR ÆTLA AÐ SKILA INN LYKLUNUM“ Bæjarfulltrúi í Grindavík gagnrýnir það að tak