Kröfum tónlistarkonunnar Bríetar Ísis Elfar á hendur þrotabúi Roks records, upp á tæpar átta milljónir króna, hefur verið vísað frá dómi vegna mikilla annmarka á kröfugerð. Pálmi Ragnar Ásgeirsson var eini eigandi Roks records og fór fram á frávísun málsins. Þrotabúið sjálft gerði ekki kröfu um frávísun en tók þó undir málatilbúnað Pálma Ragnars. Öðru máli þeirra á milli var þó ekki vísað frá.