Íslenska ríkið var sýknað í Landsrétti af kröfum níu mótmælenda sem kröfðust skaðabóta vegna aðgerða lögreglu í mótmælum við ráðherrafund árið 2024. Ríkið var sýknað af kröfum mótmælendanna í héraðsdómi Reykjavíkur í fyrravor.Oddur Ástráðsson, lögmaður níumenninganna, segir niðurstöðuna vonbrigði. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um áfrýjun málsins.Níumenningarnir mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund 31. maí í fyrra. Fundurinn var haldinn við Skuggasund í húsakynnum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Hópurinn hafði komið saman til þess að mótmæla aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda vegna stríðsglæpa ísraelska hersins á Gaza. LÖGREGLA HAFI GÆTT MEÐALHÓFS Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms þar sem kemur fram að lögregla hafi gætt meðalhófs í aðgerðum sínum. Í aðgerðunum beitti