Hezbollah vilja allsherjarvopnahlé og Ísraelsher á brott

Leiðtogi Hezbollah, Naim Qassem, ætlar ekki að samþykkja vopnahlé með ákveðnum skilyrðum sem stjórnvöld í landinu eiga í viðræðum um við Ísraela. Þess í stað krefjast Hezbollah alhliða vopnahlés sem fæli í sér að Ísraelsher myndi alfarið hörfa frá Líbanon. Yfirlýsingar leiðtoga Hezbollah komu stuttu eftir að þau tíðindi í gær að stjórnvöld í Líbanon og Ísrael hefðu sammælst um vopnahlé. Líbanon dróst inn í stríðið í byrjun mars þegar Hezbollah hóf árásir þaðan á Ísrael eftir að Bandaríkin og Ísrael drápu erkiklerk Írans. Vopnahlé síðan í apríl hefur verið brotið daglega. Ísraelsher hefur drepið yfir 3500 manns í Líbanon síðan í byrjun mars. Eyðilegging eftir árásir Ísraelshers á Tyre í suðurhluta Líbanons 2. júní 2026.AP / Uncredited
Hezbollah vilja allsherjarvopnahlé og Ísraelsher á brott

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd