Líkamsárás til rannsóknar eftir að að stúlka á grunnskólaaldri fannst meðvitundarlaus við Fjörð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar atvik sem varð við verslunarmiðstöðina Fjörð í Hafnarfirði síðastliðið laugardagskvöld.Tilkynning barst um ellefuleytið um meðvitundarlausa unglingstúlku, sem hugsanlega hafði orðið fyrir líkamsárás. Ásdís Haraldsdóttir lögreglufulltrúi staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.Stúlkan er 15 ára gömul og því enn á grunnskólaaldri. Hún var meðvitundarlaus þegar lögregla koma á staðinn og með talsverða áverka. Á svæðinu var hópur ungmenna sem talinn er tengjast málinu.Stúlkan er á batavegi en líðan hennar er eftir atvikum.Lögregla vinnur nú að því að afla upplýsinga en gefur ekki upp hvort einhver hafi verið handtekinn eða yfirheyrður vegna málsins.
Líkamsárás til rannsóknar eftir að að stúlka á grunnskólaaldri fannst meðvitundarlaus við Fjörð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd