Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að stóri flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða liggi í því hvernig tengikostnaður nýrra virkjana er reiknaður. Hann boðar frumvarp næsta haust sem eigi að greiða leið fyrir Hvalárvirkjun, Austurgilsvirkjun og mögulega Skúfnavatnavirkjun.