Kröfum söngkonunnar Bríetar Ísis Elfar gegn Pálma Ragnari Ásgeirssyni, lagahöfundi og þrotabúi Líms og varahluta ehf. um rúmar sjö milljónir hefur verið vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Félagið var í eigu Pálma og hét áður Rok records.Bríeti er gert að greiða Pálma 700 þúsund krónur í málskostnað og þrotabúi Líms og varahluta ehf. 200 þúsund krónur.Bríet og Pálmi störfuðu saman um árabil við tónlistargerð og sömdu fjölmörg lög saman yfir fjögurra ára samstarf. Þar á meðal eru vinsælustu lög Bríetar Esjan og Rólegur kúreki.Málið laut að höfundarréttar-, útgáfuréttar- og rétthafagreiðslum sem Bríet taldi félagið hafa haft af sér. Lögmaður Pálma krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi vegna verulegra ágalla á framsetningu. VAR EKKI HEIMILT AÐ BREYTA KRÖFUGERÐ Þá var einnig tekist á