Þúsundir mótmælenda komu saman í Tirana, höfuðborg Albaníu, þriðja daginn í röð í gær. Það kastaðist í kekki milli mótmælenda og lögreglu sem sprautaði úr vatnsbyssum á mannfjöldann. Efnt var til mótmælanna vegna áforma um byggingu á lúxusferðamannaparadís á verndarsvæði í landinu. Meðal fjárfesta er Affinity Partners, fyrirtæki tengdasonar Trumps Bandaríkjaforseta, Jared Kushners.Nokkur þúsund manns hafa síðustu daga mótmælt framkvæmdum við ferðamannaparadís á verndarsvæði í Albaníu. Tengdasonur Bandaríkjaforseta, Jared Kushner, er einn fjárfesta. Forsætisráðherrann segir að ekki verði hætt við áformin.Aleksandr Trajce, hjá náttúruverndarsamtökunum PPNA, segir í samtali við The Guardian að engin opinber umræða hafi verið um uppbyggingu á verndarsvæðinu, allt gegnsæi skorti og því viti alm