Framkvæmdastjóri körfuknattleikssambands Evrópu, FIBA Europe, segir að Íslendingar ættu að vera sérstaklega stoltir af þeim árangri sem íslenska karlalandsliðið í körfubolta hafi náð. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Körfuknattleikssambands Íslands. Framkvæmdastjórinn heitir Kamil Novak og er fyrrverandi landsliðsmaður Tékkóslóvakíu og síðar Tékklands í körfubolta. Hann ávarpaði þing FIBA Europe sem fór fram á Grand hótel Lesa meira