Hópur mótmælenda er samankominn á Austurvelli til að mótmæla áformuðum brottfararstöð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru um hundrað manns samankomnir.Annarri umræðu um frumvarpið er lokið á þingi. Það verður til umræðu á fundi allsherjar- og menntamálanefndar á morgun og gengur síðan til þriðju og síðustu umræðu. Stefnt er að því að afgreiða frumvarpið fyrir sumarfrí.Ráðgert er að brottfararstöð verði á Suðurnesjum vegna nálægðar við Keflavíkurflugvöll en stöðin, sem líkt og fangelsi er lokað úrræði þótt ekki sé gerð krafa um að þeir sem þar starfa séu fangaverðir, er ætluð útlendingum sem senda á úr landi. Gagnrýni á frumvarpið hefur einkum snúið að því að til stendur að þar verði barnafjölskyldur vistaðar. Meirihlutinn hefur lagt fram breytingartillögu sem felur í sér að barnafjölsky