Áberandi skjálftavirkni hefur verið víða um land undanfarna daga, meðal annars á Hengilssvæðinu, við Þórisjökul og á Reykjaneshrygg.Skjálftahrina hófst í Svínahrauni vestur af Húsmúla í Hengli á sunnudag. Stærsti skjálftinn mældist 4,5 að stærð og varð um miðjan dag á mánudag. Hundruð minni skjálfta fylgdu í kjölfarið en virkni á svæðinu hefur síðan dvínað.Í gærkvöldi hófst síðan skjálftahrina norðvestan við Þórisjökul. Tveir stærstu skjálftarnir mældust 3,8 og 3,3 að stærð og eru þeir þeir stærstu sem mælst hafa á svæðinu frá árinu 2008.Nokkuð stöðug virkni hefur verið á þessum slóðum síðustu vikur en hún tók að aukast í byrjun maí. Líklegast þykir að skjálftarnir hafi orðið vegna spennulosunar í jarðskorpunni.Að sögn Páls Einarssonar, prófessors emeritus í jarðeðlisfræði við Háskóla Ísla