Fastráðnir læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru með verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk sem námu á bilinu 33 milljónum og niður í rúmlega hálfa milljón króna árið 2024. Þetta eru verktakagreiðslur ofan á önnur laun sem eru mishá eftir starfshlutfalli. Níu læknar, eða eignarhaldsfélög þeirra og samlagsfélög í flestum tilfellum, fengu þessar verktak agreiðslur.Þetta kemur fram í svörum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri við beiðni fréttastofu um upplýsingar um þessar verktakagreiðslur. Heildargreiðslur sjúkrahússins til þessara lækna fyrir þessi ferliverk námu rúmlega 124 milljónum króna árið 2024 samkvæmt gögnunum.Samningar Sjúkrahússins á Akureyri við þessa fastráðnu lækna hafa verið talsvert í umræðunni frá því síðasta haust. Þá var samningunum sagt upp á grundvelli fyrirmæla frá heilbr