Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir fjarveru Breiðafjarðarferjunnar Baldurs koma á versta tíma. Nú þegar sé farið að afbóka ferðir sem höfðu verið bókaðar með ferjunni. Þá segir bæjarstjórinn að í raun sé engin heimild fyrir því að ferjan sé tekin úr siglingum á Vestfjörðum og nýtt í siglingar til Vestmannaeyja.