Á meðan óveðursskýin hrannast upp yfir innlendu efnahagslífi, sem er líklegt til að birtast í minni vexti einkaneyslu og verulega auknu atvinnuleysi, þá mun það óhjákvæmilega raska forsendum fjárlaga ríkissjóðs og gæti halli þessa árs orðið nærri fjörutíu milljörðum meiri en var áætlað, samkvæmt nýrri greiningu. Ef stjórnvöld ætla að standa við fyrirheit sín um hallalaus fjárlög á árinu 2027 þá er ljóst að hægari efnahagsumsvif munu kalla á víðtækari hagræðingaraðgerðir, eða enn meiri hækkun skatta.