Átján forstjórar og framámenn í íslensku atvinnulífi hafa sent stjórnvöldum bréf þar sem kallað er eftir aukinni hagsmunagæslu af hálfu Íslands gagnvart þróun ETS-kerfisins. Þeir vilja að í stað tímabundinna undanþága verði fundin varanleg lausn sem taki mið af legu landsins og fjarlægð frá mörkuðum. Forsætisráðherra segist vongóð um að Ísland fái áframhaldandi undanþágu frá kerfinu í flugi.Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, aðstæður í íslensku efnahagslífi kalla á inngrip af hálfu stjórnvalda og meðal annars þurfi að bregðast við erfiðri stöðu Icelandair. Ein leið væri að Ísland falli frá innleiðingu ETS-kerfisins en Ísland fékk undanþágu frá kerfinu út þetta ár. „Ein leið til þess að bregðast við með afgerandi hætt