Ný skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi var kynnt í morgun. Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir unnu skýrsluna fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við atvinnuvegaráðuneytið. Þar kemur meðal annars fram að mikill hluti lögbýla á Íslandi er ekki í virkri landbúnaðarnotkun.