Lögregla hefur lokið umfangsmikilli rannsókn á hópárás sem varð í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Málið er komið á borð héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um ákæru.Þrír urðu fyrir árásinni og átta voru handteknir í tengslum við málið í mars. Tveir eru enn í gæsluvarðhaldi. Lögregla telur að bíl hafi verið ekið á einn þeirra og var árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps.Maðurinn sem varð fyrir bílnum slasaðist alvarlega og var um tíma á gjörgæslu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var hann með fleiri áverka, eftir eggvopn og barsmíðar.Heimildir fréttastofu herma að annar þeirra sé ökumaður bílsins, Land Rover Defender-jeppa, sem ekið var á manninn. Átökin eru sögð hafa snúist um peningaskuld sem þeir sem urðu fyrir árásinni ætluðu sér að innheimta.Átta voru upphaflega handteknir í t