Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun segir Sundagöng hafa minni neikvæð áhrif en Sundabrú. Stofnunin telur Vegagerðina hafa varpað fullnægjandi ljósi á umhverfisáhrif fyrirhugaðra framkvæmda á Sundabraut.Framkvæmdin sé engu að síður umfangsmikið og flókið verkefni og nánari skoðun á ákveðnum þáttum nauðsynleg, samhliða frekari hönnun og undirbúningi á skipulagi.Vegagerðin í samvinnu við Reykjavíkurborg áformar lagningu Sundabrautar milli Sæbrautar og Kjalarness og leggur fram tvo valkosti í umhverfismatsskýrslu fyrir þverun Kleppsvíkur á milli Sæbrautar við Sundahöfn og Gufuness – annars vegar jarðgöng og hins vegar 30 metra háa brú.Að mati stofnunarinnar er enn mikil óvissa uppi um áhrif framkvæmdarinnar á umferð, leiðarval og heildarfjölda ekinna kílómetra, sem leiðir til óvissu um