Þegar utanríkisráðherra Bandaríkjanna var spurður að því í gær hvort hann vissi að Grænland væri hluti af Danmörku svaraði hann: „í bili.“ Utanríkisráðherra Grænlands hefur svarað honum og segir engum vafa undirorpið að framtíð Grænlands verði ákveðin af Grænlendingum.Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sat fyrir svörum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær. Sarah McBride þingmaður spurði hvort honum væri ljóst að Danir hefðu misst flesta hermenn miðað við höfðatölu í átökum við hlið Bandaríkjahers eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Rubio kvaðst hafa talið að það hefðu verið Bretar sem misstu flesta. Næst spurði þingmaðurinn hvort Rubio vissi að Grænland væri hluti af Danmörku.„Í bili,“ svaraði Rubio. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað lýst því yfir að Banda