Fáránlegt að Rússar komi í frí til Evrópu

Dómsmálaráðherra segir fáránlegt að Rússar geti komið til Evrópu í frí. Hún er meðal ráðherra ellefu Evrópuríkja sem hvetur ESB til að herða reglur um vegabréfsáritanir til Rússa.„Við erum einfaldlega að benda á það að það það er óásættanlegt, mér finnst það fáránlegt satt að segja, að rússneskir ríkisborgarar geti verið að ferðast til Evrópu í frí, til Evrópu í verslunarferðir, á meðan fólk í Úkraínu er að verja líf sitt og frelsi gegn stríði Rússa,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.Í bréfinu sem ráðherrarnir afhentu Kaju Kallas, utanríkismálaráðherra ESB, í gær, er sambandið hvatt til að herða og samræma reglur um útgáfu vegabréfsáritana til Rússa.„Framkvæmdin er misjöfn milli ríkja, en þegar menn eru komnir inn á Schengen-svæðið þá eru þeir með áritun inn á svæði
Fáránlegt að Rússar komi í frí til Evrópu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd