Margrét Friðriksdóttir, sem var í morgun sakfelld fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart. „Auðvitað stendur valdaklíkan saman það er gömul saga og ný á Íslandi, en þessum óréttláta dómi verður að sjálfsögðu áfrýjað,“ segir hún.