Talsverð olíumengun við Sævarhöfða

Talsverð mengun er á jörðu á Sævarhöfða gegnt móttökustöð Sorpu. Mengunin er í og við leifar af tönkum sem áður voru hluti af starfsemi Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. sem er í eigu Reykjavíkurborgar og Aflvaka.Ekki er vitað hvers konar mengun um er að ræða eða hvaðan hún nákvæmlega er upprunnin en hún er mjög seigfljótandi.Tankarnir voru rifnir fyrir um ári síðan en Malbikunarstöðin færði starfsemi sína af Sævarhöfða fyrir þó nokkru.Búið er að hafa samband við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sem ætlar að athuga svæðið.
Talsverð olíumengun við Sævarhöfða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd