Ísraelsher og Hezbollah hafa haldið árásum áfram í morgun, þrátt fyrir að aðeins séu nokkrir klukkutímar síðan tilkynnt var um samkomulag um að koma á vopnahléi. Ísraelsher hefur í morgun gert árásir á suðurhluta Líbanons og hótað árásum á höfuðborgina Beirút.Hezbollah hefur neitað að taka þátt í viðræðum um vopnahlé. Þá tilkynntu samtökin í morgun um árásir á ísraelska hermenn í suðurhluta landsins.Ísraelsher drap einn, hið minnsta, og særði nokkra í árásum á suðurhluta Líbanons í morgun, samkvæmt Al Jazeera.Fulltrúar Líbanons og Ísraels ræddu saman á fundi í Washington í gær um leiðir að friði. Ætlunin er að halda viðræðum áfram 22. júní.Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, sagði í dag að þrátt fyrir samkomulag um vopnahlé hefði Ísraelsher „frelsi“ til að gera árásir á Beirút ef Hezb