Yfirvöld í Taívan ætla að fjölga verulega eldflaugum sem ætlað er að granda skipum. Markmiðið er að styrkja varnir eyríkisins gegn mögulegri innrás Kínverja á komandi árum og stendur til að fjölga eldflaugum og flugskeytum verulega. Ráðamenn í eyríkinu vilja læra af átökunum í bæði Úkraínu og Persaflóa, þar sem ríki hafa varist árásum mun öflugri andstæðinga.