Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir bændur uggandi yfir innbrotum í svína- og hænsnabú á höfuðborgarsvæðinu og segir óboðlegt að bændur þurfi að líta um öxl og setja upp öryggiskerfi, haldi þessi þróun áfram.Brotist var inn í Reykjabúið, hænsna- og kalkúnabú í Mosfellsbæ, aðfaranótt mánudags, fuglar bornir út og bréf skilið eftir. Svipað innbrot var í svínabú Stjörnugríss í maí.„Það er alveg óhætt að segja að vissulega eru bændur mjög uggandi og hugsandi yfir þessu, ekki síst út frá dýravelferðinni. Þarna getur orðið gríðarlegur skaði og tjón, tilfinningalegt tjón. Svona hlutir eru aldrei gerðir undir merkjum dýravelferðar og það væri hræsni að halda einhverju öðru fram um það,“ sagði Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, í Morgunútvarpinu.Margrét segir bændur