Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í kvöld. Einkum er tekist á um hvíldartíma, vinnufyrirkomulag og svokallaða blautleigu.Samninganefndir koma saman hjá ríkissáttasemjara klukkan sjö í kvöld en síðast var fundað á föstudag. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara 5. maí.Ástráður Haraldsson segir fátt nýtt í stöðunni. Enn sé tekist á um sveigjanleika til að skipuleggja störf flugmanna og eigi og raða mönnum á skrá. Flugtímar, vaktir, frí og hvíldartímar flugmanna séu þar undir.Þá staðfestir hann að deilan snúi einnig að svokölluðum blautleigusamningum þar sem flugfélag fær annað erlent flugfélag til að fljúga fyrir sig – sem er almennt ódýrara. Í dag er ákvæði í kjarasamningi FÍA sem kveður á um einkarétt flugmanna félag