Í dag og næstu daga verður áfram hæglætisveður á landinu: hlýtt, rakt og skýjað, en sólarglennur gætu brotið sér leið gegnum skýjahuluna af og til, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Næstu daga verður vindur lengst af hægur. Allnokkrar smálægðir hringsóla í nágrenni við okkur og vindátt breytileg. Hins vegar verður skýjað um mestallt land þótt einhverjar sólarglennur brjótist í gegnum skýjahuluna af og til.Einnig er fremur hátt rakastig svo einhverrar vætu er að vænta líka. Hitastigið verður ígóðu meðallagi og gæti hámarkshitinn þar sem best lætur komist svolítið yfir 15 stig.