Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo í tengslum við líkamsárás í Kópavogi í gærkvöldi eða nótt. Þá var einn handtekinn fyrir rán í póstnúmerinu 105, annar fyrir þjófnað og eignaspjöll í 111 og þriðji fyrir húsbrot, eignaspjöll og vörslu fíkniefna.