Todd Blanche er starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.AP/FR172296 AP / Allison RobbertDonald Trump Bandaríkjaforseti hyggst útnefna Todd Blanche í stöðu dómsmálaráðherra. Blanche, sem er fyrrverandi lögmaður Trumps, hefur verið settur dómsmálaráðherra síðan Trump vék Pam Bondi úr embætti í apríl.Trump sagði gestum kvöldverðar í Hvíta húsinu í gærkvöld frá því að hann ætlaði að gefa fyrirmæli um að Blanche yrði gerður að dómsmálaráðherra varanlega. Trump segir þetta í myndskeiði sem Dan Scavino, aðstoðarskrifstofustjóri í Hvíta húsinu, deildi á samfélagsmiðlum.Til þess að Blanche geti formlega tekið við embættinu þarf útnefning hans að vera samþykkt af öldungadeild Bandaríkjaþings en þar eru Repúblikanar í meirihluta.