Átta drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza

Átta voru drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza í morgun. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir talsmanni almannavarna í Palestínu. Sjö voru drepnir í árásum á íbúðarhúsnæði og einn í árás á Al-Shati flóttamannabúðirnar.Al-Shifa sjúkrahúsið tók á móti 15 sem særðust í árásunum.Þrátt fyrir að vopnahlé milli Hamas-samtakanna og Ísraels hafi verið í gildi frá því í október eru árásir tíðar á Gazaströndinni. Heilbrigðisráðuneytið á Gaza segir að 936 hið minnsta hafi verið drepnir frá því að vopnahléð tók gildi.Helmingur Gaza lýtur yfirráðum Ísraelshers samkvæmt skilmálum vopnahléssamkomulagsins. Í síðustu viku fyrirskipaði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hernum að ná yfirráðum yfir 70% Gazastrandarinnar.
Átta drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd