Mótmælendur réðust inn í menntamálaráðuneytið í Mexíkóborg

Mótmælendur úr röðum óánægðra kennara réðust inn í menntamálaráðuneytið í Mexíkóborg í gær. Þeir hafa gripið til nokkuð umsvifamikilla mótmæla í borginni á síðustu dögum. Skammt er í að HM karla í fótbolta hefjist en Mexíkó er á meðal þriggja gestgjafaþjóða mótsins. Kennararnir hafa hótað því að setja mótið í uppnám ef ekki verður komið til móts við kröfur þeirra.Lögregla beitti mótmælendur táragasi en þeir notuðu ljósastaura til að brjóta sér leið inn í ráðuneytið.Claudia Sheinbaum forseti Mexíkó sagði í gær að hún ætlaði ekki að „falla í þá gryfju“ að kveða niður mótmælin. Þess í stað hefur hún óskað eftir viðræðum við mótmælendur. Þeirra kröfur eru auknar launahækkanir og að ný lög um eftirlaun verði felld úr gildi.Stjórnvöld hafa komist að samkomulagi við stjórn mexíkóska kennarasamban
Mótmælendur réðust inn í menntamálaráðuneytið í Mexíkóborg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd