Skjáskot úr myndskeiði af árásinni sem Bandaríkjaher deildi á samfélagsmiðlinum X.X/Skjáskot / BandaríkjaherBandaríkjaher sprengdi upp bát á austanverðu Kyrrahafi í gær sem herinn staðhæfir að hafi flutt fíkniefni.Tveir voru drepnir í árásinni, að því er segir í færslu aðgerðarstjórnar hersins á samfélagsmiðlinum X. Færslunni fylgir myndskeið af bátunum á siglingu áður en þeir eru sprengdir í loft upp.Árásir Bandaríkjahers hafa verið gagnrýndar af alþjóðlegum mannréttindasamtökum sem líkja aðgerðunum við aftökur án dóms og laga. Þá hafa Sameinuðu þjóðirnar sagt árásirnar óásættanlegar.Í það minnsta 207 hafa verið drepnir í árásum sem þessum frá því þær hófust í september, að því er segir í frétt The Guardian.