Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti fyrr í dag ályktun þess efnis að Bandaríkjaher skuli draga til baka allan herafla úr stríðinu í Íran. Ályktunin var samþykkt með 215 atkvæðum gegn 208. Fjórir þingmenn Repúblikanaflokksins kusu með ályktuninni.Ályktunin er þó að mestu táknræn þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti getur beitt neitunarvaldi gegn henni, verði hún samþykkt í öldungadeild þingsins. Samþykkt ályktunarinnar verður þó að teljast mikið högg fyrir Trump. Þetta er í fyrsta skipti sem fulltrúadeildin, með Repúblikana í meirihluta, samþykkir aðgerðir sem neyða eiga Trump til að draga úr umsvifum hersins gegn Íran síðan stríðið hófst. HALDA ÞVÍ FRAM AÐ STRÍÐINU SÉ LOKIÐ Stjórn Trumps hefur haldið því fram að stríðinu við Íran sé lokið, þó árásir haldi áfram. Marco Rubio, utanr