Evrópusambandið hefur samþykkt að færa aðildarviðræður við Úkraínu á næsta stig í kjölfar þess að ráðamenn í Ungverjalandi tilkynntu að þeir ætli ekki lengur að beita neitunarvaldi sínu gegn Úkraínu.Síðan formlegar viðræður hófust í júní 2024 hefur ekkert þokast vegna andstöðu Victor Orbans, þáverandi forsætisráðherra Ungverjalands. Peter Magyar, nýr forsætisráðherra, gaf það til kynna fljótlega eftir kosningasigur sinn í apríl að hann muni með ánægju koma skriði á aðildarviðræðurnar um leið og þjóðirnar tvær leystu úr útistandandi ágreiningsefnum.Magyar tilkynnti í dag að „sögulegt samkomulag“ hefði náðst við Úkraínu um réttindi minnihlutaþjóðarbrots Ungverja í Úkraínu, mál sem þjóðirnar hafa lengi deilt um. Þar með ætli Ungverjaland ekki lengur að standa í vegi fyrir að Úkraína opni fyrs