Reykjavíkurborg, Hjallastefnan og fasteignafélagið Reitir skrifuðu undir viljayfirlýsingu í dag um að Reitir byggi leik- og grunnskóla og leigi Hjallastefnunni.Nýtt húsnæði leik- og grunnskóla Hjallastefnunnar rís við Öskjuhlíð í Reykjavík. Skólinn hefur verið á hrakhólum síðan hann missti húsnæði sitt fyrir fjórum árum.„Þetta er hátíðisdagur, algjör hátíð í okkar bæ. Hjallastefnan með leik- og grunnskólann okkar í Öskjuhlíð sem er búið að vera að þróa í 18 ár. Við erum í fyrsta skipti komin í varanlegt skjól,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir stofnandi Hjallastefnunnar.Leikskólinn Askja hóf starfsemi 2009 á Nauthólsvegi 87 og starfaði þar í þrettán ár áður en hann vék fyrir stúdentaíbúðum Háskólans í Reykjavík. Síðan þá hefur hann verið á hrakhólum.Fyrr á þessu ári hvatti sviðsstjóri skóla-