Tveir skjálftar yfir 3 að stærð við Þórisjökul

Jörð hefur skolfið við Þórisjökul í kvöld.RÚV / Einar RafnssonTveir skjálftar yfir þremur að stærð urðu norðvestan við Þórisjökul laust eftir klukkan 23 í kvöld. Samkvæmt fyrstu mælingum Veðurstofunnar var stærð skjálftanna 3,8 og 3,3. Þeim hafa fylgt nokkrir minni eftirskjálftar.Að sögn Steinunnar Helgadóttur náttúruvársérfræðings hefur verið nokkuð stöðug virkni á þessum slóðum síðustu vikur. Líklegast þykir að skjálftarnir hafi orðið vegna spennulosunar í jarðskorpunni.
Tveir skjálftar yfir 3 að stærð við Þórisjökul

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd