Oddur Sigurðsson Hagalín, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar, segir að þó svo að það sé svipaður kostnaður við að steypa og malbika götur taki steypan lengri tíma að þorna og vegfarendur hafi litla þolinmæði. Hann telur mikilvægara að gera upp allt vegakerfið en að fara núna að steypa vegi.