Ný tæknilausn mun gera fólki kleift að kaupa vörur fyrir fimmtíu þúsund krónur í verslun þrátt fyrir að nettenging eða greiðslukortakerfi liggi niðri. Varaleiðin mun ekki virka með snertilausum greiðslum í fyrstu og því þarf fólk sem hefur lengi skilið kortið eftir heima fljótlega að taka það með sér til að búa sig undir kerfistruflanir framtíðarinnar.