Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis leggur til að fyrirhugaðri færslu hringvegar um Egilsstaði og gerð hringtorgs á gatnamótum hringvegar og Skriðdals- og Breiðdalsvegar verði frestað. Fjármagnið sem ætlað er verkefninu verði þess í stað nýtt til að flýta framkvæmdum við Axarveg.