Undirbúningur er í fullum gangi fyrir stórtónleika Kaleo og fleiri listamanna á Þingvöllum 20. júní. Á annað þúsund manns verða þar við gæslu og ýmis störf. Þjóðgarðsvörður segir þess gætt að náttúra raskist ekki.„Hér verður dagskrá sem hefst með ávarpi og kórsöng og síðan koma Kaleo,“ segir Jakob Frímann Magnússon einn þeirra sem stendur að tónleikahaldinu. OKKUR OG ÍSLENDINGUM HELGUR STAÐUR Hugmyndin að því að halda tónleika á Þingvöllum kom reyndar frá Jökli Júlíussyni söngvara Kaleo.„Við erum mjög spenntir að fá að spila í okkar þjóðgarði, það er búið að vera draumur hjá mér lengi,“ segir Jökull. „Þetta er okkur og Íslendingum mjög helgur staður og ég lít svo á að þetta sé frábært tækifæri til að smala saman Íslendingum og búa til minningar á Þingvöllum.“ FULLKOMIN STAÐSETNING FYR