Það eru nokkrar blikur á lofti í efnahagsmálum og flest bendir til þess að verðbólga, sem mældist 5,1% í síðustu mælingu, verði ekki komin undir 4,95% í haust en það var viðmið sem var sett í kjarasamningana í hitteðfyrra. Samningarnir gilda út janúar 2028 og tvisvar á þeim tíma skal leggja formlegt mat á hvort forsendur haldi. FORSENDUR HÉLDU Í FYRRA Í september í fyrra var það hvort 12 mánaða verðbólga mældist undir fyrrnefndum 4,95% og hvort lagabreytingar sem ríkisstjórnin hét í sambandi við samningana hefðu náð fram að ganga. Það var mat forsendunefndar þá að þær hefðu staðist. Bresti forsendurnar geta hvort sem er launþegasamtök eða vinnuveitendur sagt upp samningum.Í vikunni hittist þjóðhagsráð og fundarefnið var samtal ríkisstjórnar, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífs