Gert er ráð fyrir að Íslendingar muni alls eyða um 7,5 milljörðum króna í veðmál á netinu í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fer í Bandaríkjunum í sumar.Þetta kemur fram í úttekt bandaríska fyrirtækisins Yield Sec, sem var unnin fyrir Happdrætti Háskóla Íslands. Ismail Vali, forstjóri Yield Sec segir að andvirði veðmálamarkaðarins á Íslandi sé metið á 51,8 milljarð króna í fyrra og 46,8 milljarða 2024.„Þetta er markaður sem nálgast þrjú til fjögur hundruð milljarða dollara virði,“ segir Ismail Vali, forstjóri Yield Sec. „Ef þú setur þetta í samanburðarstærð þá er markaðurinn á Íslandi meira virði en í Alaska og Hawaii sameiginlega.“Vali er staddur hér á landi til að funda meðal annars með dómsmálaráðuneytinu varðandi það hvernig hægt er koma frekari böndum á veðmálama