Rýnt í flókna stöðu Icelandair

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar annað kvöld. Fundurinn á að snúast um vinnufyrirkomulag flugmanna; vaktir, frídaga og svigrúm Icelandair til að skipuleggja flug. Fleiri mál hanga þó yfir viðræðunum, meðal annars fyrirhuguð kaup Icelandair á hlut í PLAY Europe á Möltu og þungur rekstur. Við rýnum í deiluna í kvöldfréttum auk þess sem ritstjóri Innherja mætir í myndver og ræðir stöðu félagsins.
Rýnt í flókna stöðu Icelandair

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd