Minnkandi stuðningur Repúblikana við hjónabönd samkynhneigðra

Innan við fjórir af hverjum tíu stuðningsmönnum Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum styðja rétt til hjónabands samkynhneigðra, samkvæmt nýrri könnun sem fjölmiðillinn Axios birti í dag. Könnunin náði til um þúsund manns.Á sama tíma styður meirihluti Bandaríkjamanna hjónabönd samkynhneigðra, eða 65 prósent. Stuðningur Repúblikana hefur farið úr 55 prósentum árið 2021 í 37 prósent í dag. Meðal Repúblikana er stuðningurinn við hjónabönd samkynhneigðra álíka mikill í dag og hann var 2015. Meðal demókrata mælist stuðningurinn 87 prósent.Samkynja hjónabönd hafa verið lögleg í Bandaríkjunum eftir ákvörðun hæstaréttar árið 2015. Síðustu ár hafa þingmenn úr röðum Repúblikana lagt hart að hæstarétti að snúa ákvörðuninni við. Tveir sitjandi hæstaréttardómarar hafa tekið undir slíkt.
Minnkandi stuðningur Repúblikana við hjónabönd samkynhneigðra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd