Seðlabankinn leggur áherslu á samvinnu samfélagsins í heild til þess að vinna að raunverulegum viðnámsþrótti og fjármálastöðugleika. Seðlabankastjóri segir sjaldan hafa ríkt jafn mikil óvissa í alþjóðakerfinu. Þá verða heimili landsins að vera undirbúin fyrir mögulegt tímabundið óaðgengi að greiðsluleiðum.