Sænskir hægrimenn vilja lækka áfengiskaupaaldur

Fyrirkomulag áfengissölu er orðið að kosningamáli í Svíþjóð. Á dögunum tilkynnti þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratar að flokkurinn vildi að áfengisverslanir ríkisins, Systembolaget, yrðu opnar á sunnudögum. Þá ættu kaldir drykkir að vera seldir í verslununum.Nú hefur hægriflokkurinn Moderatarna heitið því að lækka áfengiskaupaaldur úr 20 árum í 18 fyrir bjór og vín. Núgildandi aldurstakmörk myndu þó halda sér fyrir sterkasta áfengið.Áfengislöggjöf í Svíþjóð er einhver sú strangasta í Evrópu. Auk þess að vera lokaðar á sunnudögum er opnunartíminn takmarkaður á laugardögum. Þá gilda strangar reglur um áfengissölu veitinga- og skemmtistaða.Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður hægriflokksins Moderaterna. Kosið verður til þings í Svíþjóð í september.EPA / GEORGE CHRISTOFO
Sænskir hægrimenn vilja lækka áfengiskaupaaldur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd